Eldbergs
Hvolparnir hennar Körmu komu í heiminn þriðjudaginn 27. október. Fæðingin gekk mjög vel og komu allir hraustir og heilbrigðir í heiminn. Alls fæddust 11 hvolpar og var kynjaskiptingin 9 tíkur og 2 rakkar. Karma stendur sig frábærlega vel í móðurhlutverkinu en þetta er hennar fyrsta got. Hvolparnir þyngjast og dafna og heilsast öllum vel. Í röntgenmyndatöku sem tekin var viku áður kom í ljós að Karma ætti von á 11 hvolpum. Við bjuggumst við stóru goti en engan grunaði að þeir væru alls 11 talsins. Allar líkur eru á því að hér sé stærsta schäfergot sem hefur fæðst og lifað á Íslandi. Karma var hraust alla meðgönguna enda í góðu formi og bar sig ótrúlega vel þrátt fyrir þennan fjölda. Hvolpakassinn er heimagerður og var settur upp um tveimur vikum fyrir got. Tveimur dögum fyrir settan dag var Karma byrjuð að krafsa og undirbúa sig. Fæðingin hófst fyrir hádegi á settum degi og lauk um kl 20 sama dag. Við fengum 10 heklaðar hvolpaólar í mismunandi litum að gjöf fyrir fæðinguna. Þegar ljóst var að hvolparnir væru fleiri en 10 var skellt í nokkrar aukaólar fyrir okkur og þvi er ein tíkin tvílit eins og sjá má.
Við hlökkum til að fylgjast með þessum glæsilega hópi stækka og þroskast. Þá er það staðfest, við eigum von á goti í lok október undan innfluttu tíkinni okkar AD BH IGP1 Kkl1 Karma Esprit van de Ybajo Hoeve. Karma var pöruð við Íslands Ísafoldar Ljónharð "Leó" en hann á eitt got fyrir. Karma hefur lokið öllum tilskyldum kröfum erlendis til þess að verða ræktunardýr en hún hefur lokið skapgerðarmati, þolprófi, hlýðniprófi, sporaprófi og bitvinnuprófi. Einnig hefur hún hlotið gæðavottunina Kkl1 sem hundar fá erlendis ef þeir uppfylla skilyrði um byggingarlag, geðslag og vinnueiginleika. Karma er undan glæsilegum rakka, VA1 Zirko van Liedehof, sem sigraði stærstu sýningu Hollands, Sieger Show, árið 2018. Leó er undan íslenska og alþjóðlega meistaranum BIS CIB ISCH Welincha´s Yasko sem var einn sigursælasti schäfer á landinu á árum áður. Karma og Leó eru bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi.
Öldungurinn okkar, Eldeyjar Hugi kvaddi í sumar eftir stutt en alvarleg veikindi. Hugi hefði orðið 13 ára í lok ágúst. Við minnumst hans með hlýhug og þakklæti fyrir tímann hjá okkur en við höfðum átt hann frá 8 vikna aldri.
Hugi hóf leitarþjálfun hjá björgunarsveitunum aðeins 3 mánaða gamall. Hann lauk fyrsta leitarprófinu sínu 6 mánaða og varð eins fljótt og mögulegt var fullþjálfaður útkallshundur bæði í víðavangsleit og snjóflóðaleit og fór í endurmatspróf árlega til þess að viðhalda réttindum sínum. Hugi sinnti útköllum samfleitt þar til hann fór á eftirlaun og tók þátt í fjölmörgum stórum þekktum leitum víðsvegar um landið. Hann fór í síðustu leitarútköllin sín árið 2017, þá 10 ára gamall. Hugi var í þónokkur skipti fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang og var því öllu vanur. Hugi var valinn Þjónustuhundur ársins hjá HRFÍ árið 2015 og heiðraður af því tilefni fyrir vel unnin störf sín hjá björgunarsveitunum. Hugi var sýndur á sýningum HRFÍ með góðum árangri. Hann fékk tvö íslensk meistarastig og var á sínum tíma á meðal stigahæstu schäferrakka landsins. Hann hlaut fjölda heiðursverðlauna fyrir afkvæmi sín, fjölmörg hafa fengið íslensk meistarastig og urðu mörg þeirra meistarar. Afkvæmahópur hans sigraði nokkrum sinnum aðrar tegundir á hundasýningum HRFÍ sem besti afkvæmahópur sýningar. Hugi var síðustu árin sýndur sem öldungur, fékk ávallt heiðursverðlaun og var margoft valinn besti öldungur tegundar. Hugi átti fjögur got með fjórum tíkum, alls 24 hvolpa og í upphafi þessa árs eignaðist hann 10 afabörn. Hugi var sá allra besti. Afburða vinnuhundur og yndislegur heimilishundur. Hann hafði allt það sem schäferhundur þarf að bera að okkar mati. Hann var öruggur, sjálfstæður, hugaður, hlýðinn og yfirvegaður sem nýttist honum einnig vel í vinnu en þar var hann 150% og alltaf hægt að treysta á hann. Hans er og verður sárt saknað. Þá fer viðburðarríku sumri að ljúka. Við ferðuðumst víða um landið, fórum vikuferð í bústað, vikuhringferð um landið auk annarra styttri helgarferða og dagsferða. Það er að okkar mati auðvelt að ferðast með hunda innanlands, þeir eru yfirleitt allstaðar velkomnir. Á okkar ferð var aðeins einn staður sem ekki leyfir hunda og vissum við af því fyrirfram en það er Herjólfsdalur. Það kom þó ekki að sök þar sem það er annað tjaldsvæði í Vestmannaeyjum og þar eru hundar velkomnir. Þegar við ferðumst með hundana höfum við augun opin fyrir svæðum þar sem þeir geta fengið að hlaupa um lausir eins og þeir eru vanir að gera hjá okkur daglega. Oftast verða fyrir valinu fjörur, hættulitlar ár og opin svæði fjarri bílaumferð. Myndirnar koma í réttri tímaröð og eru teknar í maí, júní og júlí. Við minnum á Instagram síðuna okkar undir nafninu eldbergs en þar koma reglulega inn myndir og fréttir.
Við fengum sendar nokkrar myndir af Bellu dóttur hans Ghazi sem við sögðum frá í fyrra. Hún er 17 mánaða og býr hjá eiganda og ræktanda sínum í Hollandi. Við erum virkilega stolt af þessari glæsilegu tík sem sigraði á Sieger show í Belgíu í fyrra og varð í 3. sæti á Sieger í Hollandi. Sieger sýningarnar eru aðalsýningar ársins og eru haldnar einu sinni á ári í hverju landi fyrir sig. Búið er að fella niður allar sýningar í Hollandi út árið eins og í mörgum öðrum löndum en það hefði verið áhugavert að fylgjast með henni áfram á þessu ári. Ghazi eignaðist þrjú got í Hollandi áður en hann kom til Íslands 2 ára gamall.
Með hækkandi sól, batnandi veðri og lengri dögum gefst tækifæri fyrir fjölbreyttari hreyfingu og útiveru svo sem hjólaferðir, sund, vatnssull ofl. Svo er líka vinsælt að liggja úti í garði eða á pallinum og slaka á í sólinni. Nýju tíkurnar virðast alsælar með lífið á Íslandi og taka vel við allskonar þjálfun og æfingum.
Nú hafa nýju tíkurnar verið hjá okkur í rúmar þrjár vikur. Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með þeim og kynnast þeim betur. Þær eru báðar rosalega skemmtilegir karakterar, fjörugar, orkumiklar, yndislegar og barngóðar.
Sjötta gotið hans Ghazi kom í heiminn í mars og fæddust 8 heilbrigðir og duglegir hvolpar hjá Svarthamars ræktun. Þar á undan fæddust 10 hraustir hvolpar undan Ghazi hjá Ásgarðs Freyju ræktun í byrjun febrúar. Alls eru því afkvæmi Ghazi á Íslandi orðin 39. Við höfum fengið frábært tækifæri til að fylgja öllum gotunum hans eftir og er virkilega gaman að sjá hversu vel gengur hjá hvolpum og eigendum þeirra. Nýju tíkurnar okkar komu úr einangrun á miðvikudaginn og gengur þeim mjög vel að aðlagast nýjum aðstæðum. Báðar eru afskaplega ljúfar og góðar en á heimilinu eru fyrir þrjú ung börn og þrír aðrir hundar. Þær nutu sín vel í lausagöngu með Ghazi eins og sjá má á myndunum.
Það mun heldur betur fjölga á heimilinu hjá okkur í næstu viku en þá munu nýju tíkurnar okkar tvær koma úr einangrun. Þær eru báðar frá Hollandi og bíða okkar núna í einangrunarstöðinni Móseli.
Sú eldri heitir Karma og er 2 ára. Hún hefur lokið öllum tilskyldum kröfum erlendis til þess að vera notuð í ræktun svo sem AD þolpróf, BH skapgerðarmat og IGP1 próf (hlýðni, spor og bitvinna) ásamt því að hafa hlotið gæðavottunina Kkl1 fyrir byggingu, geðslag og vinnueiginleika. IGP prófið er nýtt endurbætt próf í stað þess sem áður var kallað IPO og lauk hún öllum sínum prófum í Þýskalandi. Karma er undan VA1 IPO3 Kkl1 Zirko van Liedehof sem sigraði Sieger show í Hollandi 2018 og er hún frí af mjaðma- og olnbogalosi. Yngri tíkin heitir Italy. Hún er tæplega árs gömul, virkilega falleg og efnileg tík. Italy er undan hinum fræga V1 BSZS 2019 IPO2 Kkl1 Kampus vom Drei Birkenswinger, ungur og glæsilegur þýskur rakki sem hefur sigrað fjölmargar sýningar. Kampus náði auk þess toppeinkunn á Sieger show í Þýskalandi 2018 og 2019 þar sem hann sigraði í bæði skiptin (SG1 og V1) og verður hann eflaust aftur á meðal þeirra hæstu núna í ár. Við erum virkilega ánægð með þessar tvær vinkonur og hlökkum mikið til að hitta þær aftur. Æingahelgi Leitarhunda fór fram á Akureyri um helgina. Ghazi æfði snjóflóðaleit bæði laugardag og sunnudag og stóð sig að sjálfsögðu mjög vel. Hann er virkilega efnilegur vinnuhundur og mjög lofandi sem leitarhundur. Við stefnum á að taka útkallspróf á hann og verður hann þá einn af þremur schäferhundum á landinu með slíkt gilt próf í snjóflóðaleit. Við höfum þjálfað leitarhunda í rúm 12 ár og yrði Ghazi okkar þriðji schäfer sem fer á útkallslista björgunarsveitanna. Mikil vöntun er á snjóflóðaleitarhundum og hafa síðustu vikur sýnt að þörfin er svo sannarlega til staðar.
Hundar eru ein öflugasta björgin sem við höfum í snjóflóðaleit en þeir geta fundið lykt af mönnum á nokkurra metra dýpi. Snjóflóðaleitin er fínleit líkt og sporaleit svo svæðið sem farið er um er mun minna en í víðavangsleit. Hundur þarf að vera vel umhverfisvaninn, taka merkjum og stýringum frá stjórnanda, vera óhræddur við fólk, menn, dýr og vélar og fara öruggur niður í holuna til þess týnda. Verðlaunin eru að fá skemmtilegan leik eftir fundinn og þeir sem eru með allar tilætlaðar hvatir gera allt til þess að klára verkefnin sín og fá leikinn sinn að launum. |
EldbergsSchäfer ræktun Fréttir
December 2023
Flokkar |