Eldbergs
Fengum fallegt veður í göngu í vikunni þrátt fyrir storma og stormviðvaranir dagana í kring og smelltum af nokkrum myndum.
Við óskum öllum gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á árinu sem er að líða. Árið hefur verið sérstaklega gott hjá okkur. Nú hefur 21 fjölskylda eignast hvolp undan Ghazi og munu fleiri bætast í hópinn á næsta ári. Það er gaman að fá að fylgja hvolpunum eftir og sjá þá vaxa og dafna og ánægjulegt að heyra hvað gengur vel hjá öllum. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar í göngunni okkar á aðfangadag.
Ghazi var valinn Besti rakki tegundar og Besti hundur tegundar á hundasýningu HRFÍ í nóvember. Hann fékk íslenskt meistarastig, norðurlandameistarastig og Crufts þátttökurétt. Þetta var hans þriðja íslenska meistarastig svo hann er núna orðinn Íslenskur meistari. Ghazi keppti því næst í tegundahóp 1 við aðra fjár- og hjarðhunda, sigraði þar og var valinn Besti hundur í tegundahóp 1. Á sunnudeginum mætti hann aftur í stóra hringinn í Best in show og lenti í öðru sæti. Ghazi var því Annar besti hundur sýningar! Glæsilegur árangur hjá þessum unga hundi og mikið sem við erum stolt af honum. Alls voru skráðir 842 hundar af ýmsum tegundum. Eftir árið er Ghazi: Stigahæsti rakki Schäferdeildarinnar Stigahæsti hundur Schäferdeildarinnar Stigahæsti schäfer hjá HRFÍ Stigahæsti hundur HRFÍ allar tegundir 10.-12. sæti Íslenskur meistari 3x BOB Besti hundur tegundar BIS 1 Besti hundur sýningar Sérsýning Schäferdeildar BIS 2 Annar besti hundur sýningar HRFÍ Sýningarárangur Ghazi 2019
Okkur þykir gaman að segja frá því að við eigum von á hvolpum í lok nóvember. Þeir eru undan innfluttu hundunum okkar Ghazi og Quimbu. Þetta verður fimmta got Ghazi á Íslandi en hann á nú þegar fjögur got hjá þremur öðrum ræktendum. Báðir foreldrarnir hafa lokið BH skapgerðarmati en að auki hefur Ghazi lokið þeim vinnuprófum sem kröfur gera um erlendis (IPO1) auk þess að hafa lokið Kkl1 ræktunarstaðli (Körung / Breed Surveyed).
Deildarsýning Schäferdeildarinnar var haldin 12. október í Mánahöllinni í Keflavík. Dómari sýningarinnar var sérhæfður schäferdómari og voru yfir 50 hundar skráðir. Ghazi var í 1. sæti í vinnuhundaflokk með excellent og meistaraefni. Þá keppti hann við aðra rakka um titilinn Besti rakki tegundar og sigraði einnig þar og fékk sitt annað íslenska meistarastig. Þá keppti hann við bestu tík tegundar og sigraði Ghazi og var valinn Besti hundur tegundar. Að lokum keppti hann við besta síðhærða hundinn og sigraði Ghazi einnig þar og var valinn BESTI HUNDUR SÝNINGAR.
Tveir hvolpar undan Ghazi voru skráðir á sýninguna og sigruðu báðir sína flokka. Tíkin Orka (Kolgrímu Oh my god) var valin Besta tík tegundar í hvolpaflokki 3-6 mánaða (síðhærður schäfer). Rakkinn Síló (Ice Tindra Silo) var valinn Besti rakki tegundar í hvolpaflokki 3-6 mánaða (síðhærður schäfer). Glæsilegur árangur hjá afkvæmum Ghazi og hlökkum við til að fylgjast með þeim. Við fengum fyrrverandi eigendur Ghazi í heimsókn yfir helgina og sáu þau um að sýna Ghazi fyrir okkur. Þau eru öll professional sýnendur og sýna schäferhunda út um allan heim. Þau þjálfuðu Ghazi frá upphafi (sýningaþjálfun, hlýðni, spor, bitvinna) og kenndu honum allt sem hann kann. Theodór hefur starfað sem björgunarsveitarmaður á útkallslista í rúm 15 ár. Fyrir 12 árum byrjaði hann að þjálfa Huga með Leitarhundum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, síðan Tind og núna Ghazi. Við fengum nokkrar myndir sendar af Ghazi sem teknar voru á æfinga- og úttektarhelgi Leitarhunda. Ghazi æfði bæði laugardag og sunnudag og tók leitir í víðavangsleit (vindlykt) ásamt sporaleit. Það virðist engu máli skipta hvaða verkefni þessi hundur fær, hann rúllar öllu upp enda gríðarlega vinnusamur. Þrátt fyrir að vera með bæði bitvinnupróf og erlent sporapróf þá er lítið mál að þjálfa hann að auki í víðavangsleit og sporaleit í íslenskri náttúru.
Það er gaman að fá fyrirspurnir frá þeim sem eru að fylgjast með okkur og höfum við fengið spurningar og athugasemdir varðandi það að ala upp þessa tegund með börnum. Á okkar heimili eru börnin alin upp við að eiga schafer, þau þekkja ekki annað og eru öll miklir dýravinir. Hundarnir eru yfirleitt það síðasta sem þau kveðja á kvöldin og það fyrsta sem þau heilsa á morgnana. Stundum æfa þau sig að lesa heimalesturinn fyrir hundana. Hundarnir fylgja okkur allt, í ferðalög innanlands, ganga stundum með krökkunum í og úr skóla og leikskóla, eru með í leikjum úti í garði og fara alltaf með þegar farið er á rólóvöll. Börnin koma með í lausagöngur með hundana og taka þátt í að sinna þeim heimavið. Börnin eru þrjú og eru 9, 6 og 2 ára og hundarnir á heimilinu eru þrír; 12, 4 og 3 ára. Það er vart hægt að sjá hvort samveran gefi börnunum eða hundunum meira. Við getum svo sannarlega mælt með þessari tegund fyrir fjölskyldufólk.
Það var fallegt veður í Hafnarfirði á Norðurlandasýningu HRFÍ laugardaginn 24. ágúst. Ghazi var valinn Besti hundur tegundar og keppti síðar um daginn í úrslitum í Tegundarhópi 1 þar sem hann lenti í 3. sæti. Glæsilegur árangur hjá þessum fallega unga rakka og gætum við ekki verið stoltari og ánægðari með hann. Hann fékk sín fyrstu meistarastig á sýningunni, íslenskt meistarastig og NKU norðurlandastig. Á sunnudeginum var hann valinn Annar besti rakki tegundar og hlaut þá alþjóðlegt meistarastig. Við þökkum Eygló okkar enn og aftur fyrir að sýna hann og Gumma ljósmyndara fyrir að ná fjölmörgum góðum myndum fyrir okkur af Ghazi.
|
EldbergsSchäfer ræktun Fréttir
December 2023
Flokkar |