Hvolpar
Væntanlegt GotVið eigum von á goti undan innfluttu hundunum okkar, þeim Quimbu og Ghazi. Áætlaður fæðingardagur er í lok nóvember.
Við erum byrjuð að skrá hjá okkur þá sem vilja komast á lista fyrir næstu got. Við verðum með mjög spennandi got á næsta ári, vor/sumar 2020. Þeir sem hafa áhuga á að skoða það nánar geta sent fyrirspurn á [email protected] eða hringt í síma 8681889 (Íris). Upplýsingar um foreldrana má finna hér. Einnig er að finna upplýsingar neðar á þessari síðu. |
BIS V1 ISCH AD BH Kkl1 IPO1 Ghazi von Nordsee Sturm
|
Nóvembergot 2019
Ghazi og Quimba eru bæði innflutt og frí af mjaðma- og olnbogalosi. Bæði hafa þau lokið BH skapgerðarmati erlendis ásamt AD þolprófi. Að auki er Ghazi búin með þau vinnupróf sem krafist er erlendis fyrir ræktunardýr, IPO próf, sem samanstendur af hlýðni, spori og bitvinnu. Í þessari pörun munum við setja saman þýskar og hollenskar línur. Quimba er af þýskum ættum en Ghazi er frá Hollandi með þýskar og hollenskar línur á bakvið sig. Í ættbók hvolpanna mun vera hægt finna marga þekkta hunda og hafa nokkrir þeirra sigrað Sigershow í Þýskalandi (VA1 BSZS) sem er aðal keppni tegundarinnar á heimsvísu.
|