Eldbergs
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
  • Um okkur
  • Leitarþjálfun
  • Hafa samband
  • Væntanleg got
  • Eldri got

Eldbergs

Ghazi sigrar á sýningu

30/8/2019

 
Picture
Picture
Picture
Picture
Ghazi BOB, BIG-3 með CC og NCAC
Það var fallegt veður í Hafnarfirði á Norðurlandasýningu HRFÍ laugardaginn 24. ágúst. Ghazi var valinn Besti hundur tegundar og keppti síðar um daginn í úrslitum í Tegundarhópi 1 þar sem hann lenti í 3. sæti. Glæsilegur árangur hjá þessum fallega unga rakka og gætum við ekki verið stoltari og ánægðari með hann. Hann fékk sín fyrstu meistarastig á sýningunni, íslenskt meistarastig og NKU norðurlandastig. Á sunnudeginum var hann valinn Annar besti rakki tegundar og hlaut þá alþjóðlegt meistarastig. Við þökkum Eygló okkar enn og aftur fyrir að sýna hann og Gumma ljósmyndara fyrir að ná fjölmörgum góðum myndum fyrir okkur af Ghazi.


Sumarið

10/8/2019

 
Sumarið hefur farið vel í okkur. Við höfum ferðast innanlands en einnig notið veðurblíðunnar á höfuðborgarsvæðinu. Quimba og Ghazi fóru til Vestmannaeyja og Tindur ferðaðist alla leið á austfirði í vinnuferð. 
Picture
Quimba og Ghazi höfðu það gott í Vestmannaeyjum
Picture
Klifrað í klettum við höfnina
Picture
Tindur hljóp margar ferðir daglega upp og niður Oddskarð
Picture
Feðgarnir Hugi og Tindur
​​Sá hörmulegi atburður gerðist í byrjun ágúst að ekið var á Tind meðan hann var í umsjá fósturfjölskyldu sinnar. Tindur hafði verið þar á fóðursamning síðan í vor en dvaldi öðru hverju hjá okkur inn á milli. Hann var nýfarinn frá okkur eftir tveggja vikna dvöl og átti að koma aftur til okkar nokkrum dögum seinna. Það hefur því verið gríðarleg sorg á heimilinu síðustu daga og söknum við hans sárt. Tindur var einn af efnilegustu rökkum landsins, hann var íslenskur meistari, þjálfaður leitarhundur og átti glæsilegan sýningarferil. Það er mikil eftirsjá eftir þessum unga, fallega rakka.

    Eldbergs

    Schäfer ræktun

    Fréttir

    December 2023
    November 2023
    February 2023
    October 2022
    March 2022
    February 2022
    December 2021
    November 2021
    July 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019

    Flokkar

    All

    Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
  • Um okkur
  • Leitarþjálfun
  • Hafa samband
  • Væntanleg got
  • Eldri got