Eldbergs
Sumarið hefur farið vel í okkur. Við höfum ferðast innanlands en einnig notið veðurblíðunnar á höfuðborgarsvæðinu. Quimba og Ghazi fóru til Vestmannaeyja og Tindur ferðaðist alla leið á austfirði í vinnuferð. Sá hörmulegi atburður gerðist í byrjun ágúst að ekið var á Tind meðan hann var í umsjá fósturfjölskyldu sinnar. Tindur hafði verið þar á fóðursamning síðan í vor en dvaldi öðru hverju hjá okkur inn á milli. Hann var nýfarinn frá okkur eftir tveggja vikna dvöl og átti að koma aftur til okkar nokkrum dögum seinna. Það hefur því verið gríðarleg sorg á heimilinu síðustu daga og söknum við hans sárt. Tindur var einn af efnilegustu rökkum landsins, hann var íslenskur meistari, þjálfaður leitarhundur og átti glæsilegan sýningarferil. Það er mikil eftirsjá eftir þessum unga, fallega rakka.
Bella vom Haus Amany er hvolpur sem við höfum fylgst reglulega með frá fæðingu en hún kom í heiminn stuttu eftir að við festum kaup á Ghazi. Hún keppti nýlega á tveimur Sieger sýningum með stuttu millibili en Sieger sýningar eru stærstu schäfersýningarnar og haldnar árlega í hverju landi fyrir sig. Í heimalandi sínu, Hollandi, varð hún í 3. sæti en í Belgíu núna í vikunni sigraði hún (VV1) og hlaut þar með Sieger titil. Virkilega glæsilegur árangur hjá þessari fallegu tík og erum við afar stolt af þeim feðginum. Við hlökkum til að fylgjast með henni í framtíðinni.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í maí, júní og júlí. Eins og einhverjir hafa frétt af voru ekki hvolpar í tíkinni skv. seinni sónar en Quimba og Ghazi verða því pöruð aftur í haust.
HRFÍ hélt tvöfalda sýningu um helgina á Víðistaðatúni í Hafnarfirði og fengum við frábært veður báða daga. Við mættum með tvo hunda, íslenska meistarann ISCH Gjósku Tind og innflutta vinnuhundinn AD BH IPO1 Kkl1 Ghazi von Nordsee Sturm. Þeir stóðu sig mjög vel og gætum við ekki verið sáttari við árangurinn. Báðir hundar fengu excellent og meistaraefni báða daga. Af 15 rökkum sem skráðir voru til leiks á laugardeginum var Ghazi valinn 2. besti rakki og Tindur 4. besti rakki. Á sunnudeginum varð Ghazi aftur 2. besti rakkinn. Við erum virkilega stolt af Ghazi að ná svo langt á báðum sýningum, undir sitthvorum dómaranum. Myndirnar að neðan fengum við sendar til okkar um helgina og eru þær af Ghazi.
Það gengur vel hjá Ghazi á æfingum og hefur hann fengið æfingar bæði í spori og víðavangsleit. Á þessari æfingu í maí tók hann nokkur spor, þar af eitt frekar krefjandi með nokkrum vinklum og mismunandi undirlendi. Hann er vanur sporavinnu frá Hollandi en þó með öðru undirlendi, töluvert frábrugðið íslenska landslaginu.
Við erum búin að para innfluttu hundana okkar, þau Quimbu og Ghazi. Eftir nokkrar vikur munum við fara með Quimbu í sónar og fáum þá að vita hvort pörunin hefur tekist.
Ghazi kemur frá Hollandi og Quimba frá Þýskalandi. Þau eru bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi. Bæði hafa þau lokið BH skapgerðarmati erlendis ásamt AD þolprófi. Ghazi er búinn með þau vinnupróf sem krafist er erlendis fyrir ræktunardýr (IPO1; spor, hlýðni og bitvinna) ásamt Kkl1 ræktunardóm sem er einskonar gæðavottun fyrir rétta byggingu, geðslag og vinnueðli. Við erum mjög spennt fyrir þessari pörun og vonumst til að fá jákvæðar fréttir innan nokkurra vikna. Quimba og Ghazi verða pöruð á næstu dögum og ef allt gengur upp munum við eiga von á hvolpum í júlí. Áhugasamir geta haft samband við okkur í síma 868-1889 eða sent póst. Sjá nánari upplýsingar hér.
Við fengum sendar nokkrar fallegar myndir af Ghazi sem voru teknar í veðurblíðunni um daginn. AD BH IPO1 KKl1 Ghazi von Nordsee Sturm - Ljósmyndir: Guðmundur Rafn Ásgeirsson.
Ghazi mætti á æfingu hjá Leitarhundum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar um helgina ásamt fjórum öðrum hundum. Hann tók bæði úthlaup í víðavangsleit en einnig sporarakningu. Hann hefur mikla möguleika á að sinna hvoru tveggja svo það verður spennandi að sjá hvort verður fyrir valinu. Við hlökkum til að fylgjast með honum á æfingum næstu vikur.
|
EldbergsSchäfer ræktun Fréttir
December 2023
Flokkar |