Fréttir
Eins og margir vita lentum við í hrottalegri árás fyrir um tveimur vikum. Aðeins örfáum dögum eftir að við tilkynntum um væntanlegt got var u.þ.b. hálfu kg af rottueitri dreift um garðinn hjá okkur í bland við pylsubita og kjötbollur. Tveir af hundunum okkar komust í þessa blöndu, væntanlegir foreldrar gotsins þau Ghazi og Italy, og átu þau bæði nokkra bita. Sem betur fer gerðum við okkur grein fyrir að búið væri að eitra fyrir þeim og var því hægt að bregðast skjótt við með því að framkalla uppköst og komast undir læknishendur þar sem þau fengu bæði lyfjakol og mótefni. Parið hefur verið í reglulegu eftirliti hjá dýralækni síðan þá og hefur tekið því rólega samkvæmt læknisráði. Blessunarlega eru þau á batavegi eftir þennan verknað en augljóst þykir að rottueitrinu, sem komið var fyrir í garðinum okkar í skjóli nætur, var ætlað til þess að valda alvarlegum skaða. Um lífshættulegt efni að ræða sem einungis meindýraeyðar hafa leyfi til þess að kaupa og nota við sérstakar aðstæður. Við viljum benda fólki á að vera ávallt vakandi fyrir því ef búið er að dreifa matvælum utandyra og leita strax til dýralæknis ef minnsti grunur leikur á eitrun. Okkar bestu þakkir til allra þeirra sem hafa haft samband símleiðis, í skilaboðum og vefpósti, sent okkur batakveðjur, hlýjar hugsanir eða komið til okkar með fyrirspurnir um líðan hundana. Við kunnum vel að meta þann hlýhug og alla þá aðstoð sem við höfum fengið.
Við fengum staðfest í vikunni að von væri á goti hjá okkur í næsta mánuði. Foreldrar að þessu sinni eru báðir innfluttir: Italy van Liedehof og ISCH AD BH IPO1 Kkl1 Ghazi von Nordsee Sturm. Við erum mjög stolt af þessu goti enda eru foreldrarnir glæsilegir fulltrúar tegundarinnar. Ghazi og Italy koma bæði frá Hollandi og eru frí af mjaðma- og olnbogalosi.
Úttektarhelgi Leitarhunda fór fram á Austfjörðum um helgina og var einn hundur frá okkur, Ghazi, skráður í próf. Tveir hvolpar frá okkur, Apríl og Dixie, voru einnig á svæðinu við æfingar í snjóflóðaleit. Lágmarksaldur í próf er 6 mánaða og eru þær of ungar til þess að mega ljúka grunnprófi. Úttektin samanstendur af fjögurra daga prófatörn þar sem hundur þarf að ná prófi fjóra daga í röð til þess að standast kröfur. Snjóflóðaleitarprófin eru haldin einu sinni á ári. Ghazi var skráður í útkallspróf og rúllaði því að sjálfsögðu upp. Hann er því kominn á útkallslista í snjóflóðaleit hjá Leitarhundum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Björgunarsveitinni Ársæl í Reykjavík. Ghazi er þriðji hundurinn okkar sem fer á útkallslista hjá björgunarsveitunum en við höfum þjálfað hunda til björgunar- og leitarstarfa frá árinu 2007. Ghazi og Apríl flugu austur á firði og voru við snjóflóðaleitaræfingar í Oddsskarði í fjóra daga
Italy og Karma hafa núna verið hjá okkur í eitt ár en við sóttum þær í einangrun 11. mars í fyrra. Við vorum mjög heppin að ná þeim heim rétt áður en covid skall á af fullum þunga en þær voru í síðasta 4 vikna einangrunarhollinu í Móseli. Italy varð 2 ára þann 10. mars. Hún var mynduð fyrr á árinu og er frí af mjaðma- og olnbogalosi. Næsta got hjá okkur verður undan Italy og Ghazi og erum við mjög spennt fyrir þeirri pörun. Italy er undan heimsfrægum þýskum rakka: Kampus vom Drei Birkenzwinger. Kampus er glæsilegur rakki með flottan sýningarferil en hann varð V1 á Sieger show í Þýskalandi sem er aðal schäfersýning heims. Í móðurætt er Italy barnabarn Ballack von der Brucknerallee. Ballack er einnig heimsfrægur þýskur rakki en hann sigraði á Siger show í Þýskalandi fjögur ár í röð auk þess að sigra Sieger sýningar í öðrum löndum. V1 BSZS IGP3 Kkl1 Kampus vom Drei Birkenzwinger
Við höfum átt og þjálfað schäferhunda til leitar- og björgunarstarfa frá árinu 2007. Á þessum tíma árs fara árlega fram æfingar í snjóflóðaleit og sækja hundarnir okkar æfingar bæði í nágrenni við höfuðborgarsvæðið og á landsbyggðinni. Öll leitarpróf féllu niður á síðasta ári svo við fögnum því að aðstæður bjóði loks upp snjóflóðaleitarpróf í næsta mánuði. Þangað til halda æfingar áfram og hafa hundarnir gott og gaman af enda gengur leitarþjálfunin út á leik og gleði fyrir hundinn.
Það var ánægjulegt að afhenda spenntum fjölskyldum nýja heimilismeðliminn rétt fyrir jól. Það gengur rosalega vel hjá öllum og erum við mjög stolt af hópnum sem var valinn til þess að sinna þessu skemmtilega en krefjandi verkefni. Hvolparnir eru nú orðnir 3 mánaða og dafna og þroskast vel.
Kynjaskiptingin í hópnum voru 9 tíkur og 2 rakkar. Af þeim var ein tík síðhærð en hinir 10 voru snögghærðir. Hvolparnir fengu eftirfarandi nöfn og raðast hér eftir fæðingarröð: Eldbergs Aría Eldbergs Arka Eldbergs Alda Eldbergs Alba Eldbergs Afla Ísafold Eldbergs Apríl Eldbergs Anton Berg Eldbergs Askja Eldbergs Andri Eldbergs Ambra Eldbergs Arða Hér á eftir koma nokkrar myndir frá síðustu dögunum þeirra hjá okkur. Við vorum afskaplega heppin með veður þrátt fyrir árstíma. Hvolparnir höfðu því tækifæri til þess að fara nokkrum sinnum út yfir daginn og nutu sín ofsalega vel. Gotið okkar er 6 vikna í dag og því er mikið fjör á heimilinu. Þau sýna öll sterkan karakter og eru dugleg að fara um heimilið, naga og draga leikföng og veltast um hvort annað í leik. Veðrið hefur verið ágætt undanfarið sem gefur okkur tækifæri til þess að leyfa þeim að hlaupa um úti og leika. Daglega takast þau á við alls konar verkefni og áskoranir enda reynum við að hafa umhverfið áhugavert og hvetjandi með fjölbreyttri afþreygingu. Á heimilinu búa einnig þrjú börn og fá því allir hvolpar næga athygli, knús og klapp á milli þess sem þau sofa, borða og leika sér.
Hvolparnir munu flytja á nýju heimilin sín 22. desember. Við erum svakalega stolt og ánægð með hvolpakaupendahópinn okkar og hlökkum til þess að gleðja allar fjölskyldurnar rétt fyrir jól þegar við afhendum þeim nýjasta fjölskyldumeðliminn. Það var gríðarlega erfitt og krefjandi verkefni að fara í gegnum umsóknirnar en því miður gátum við aðeins valið úr lítið brot sem bauðst að lokum hvolpur frá okkur. Við hvetjum því fólk til þess að fylgjast vel með og vera í sambandi við okkur í vetur og næsta vor. Ef allt gengur upp munum við para Italy og Ghazi og gerum ráð fyrir hvolpum næsta sumar. Hvolparnir hennar Körmu komu í heiminn þriðjudaginn 27. október. Fæðingin gekk mjög vel og komu allir hraustir og heilbrigðir í heiminn. Alls fæddust 11 hvolpar og var kynjaskiptingin 9 tíkur og 2 rakkar. Karma stendur sig frábærlega vel í móðurhlutverkinu en þetta er hennar fyrsta got. Hvolparnir þyngjast og dafna og heilsast öllum vel. Í röntgenmyndatöku sem tekin var viku áður kom í ljós að Karma ætti von á 11 hvolpum. Við bjuggumst við stóru goti en engan grunaði að þeir væru alls 11 talsins. Allar líkur eru á því að hér sé stærsta schäfergot sem hefur fæðst og lifað á Íslandi. Karma var hraust alla meðgönguna enda í góðu formi og bar sig ótrúlega vel þrátt fyrir þennan fjölda. Hvolpakassinn er heimagerður og var settur upp um tveimur vikum fyrir got. Tveimur dögum fyrir settan dag var Karma byrjuð að krafsa og undirbúa sig. Fæðingin hófst fyrir hádegi á settum degi og lauk um kl 20 sama dag. Við fengum 10 heklaðar hvolpaólar í mismunandi litum að gjöf fyrir fæðinguna. Þegar ljóst var að hvolparnir væru fleiri en 10 var skellt í nokkrar aukaólar fyrir okkur og þvi er ein tíkin tvílit eins og sjá má.
Við hlökkum til að fylgjast með þessum glæsilega hópi stækka og þroskast. Þá er það staðfest, við eigum von á goti í lok október undan innfluttu tíkinni okkar AD BH IGP1 Kkl1 Karma Esprit van de Ybajo Hoeve. Karma var pöruð við Íslands Ísafoldar Ljónharð "Leó" en hann á eitt got fyrir. Karma hefur lokið öllum tilskyldum kröfum erlendis til þess að verða ræktunardýr en hún hefur lokið skapgerðarmati, þolprófi, hlýðniprófi, sporaprófi og bitvinnuprófi. Einnig hefur hún hlotið gæðavottunina Kkl1 sem hundar fá erlendis ef þeir uppfylla skilyrði um byggingarlag, geðslag og vinnueiginleika. Karma er undan glæsilegum rakka, VA1 Zirko van Liedehof, sem sigraði stærstu sýningu Hollands, Sieger Show, árið 2018. Leó er undan íslenska og alþjóðlega meistaranum BIS CIB ISCH Welincha´s Yasko sem var einn sigursælasti schäfer á landinu á árum áður. Karma og Leó eru bæði frí af mjaðma- og olnbogalosi.
Öldungurinn okkar, Eldeyjar Hugi kvaddi í sumar eftir stutt en alvarleg veikindi. Hugi hefði orðið 13 ára í lok ágúst. Við minnumst hans með hlýhug og þakklæti fyrir tímann hjá okkur en við höfðum átt hann frá 8 vikna aldri.
Hugi hóf leitarþjálfun hjá björgunarsveitunum aðeins 3 mánaða gamall. Hann lauk fyrsta leitarprófinu sínu 6 mánaða og varð eins fljótt og mögulegt var fullþjálfaður útkallshundur bæði í víðavangsleit og snjóflóðaleit og fór í endurmatspróf árlega til þess að viðhalda réttindum sínum. Hugi sinnti útköllum samfleitt þar til hann fór á eftirlaun og tók þátt í fjölmörgum stórum þekktum leitum víðsvegar um landið. Hann fór í síðustu leitarútköllin sín árið 2017, þá 10 ára gamall. Hugi var í þónokkur skipti fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang og var því öllu vanur. Hugi var valinn Þjónustuhundur ársins hjá HRFÍ árið 2015 og heiðraður af því tilefni fyrir vel unnin störf sín hjá björgunarsveitunum. Hugi var sýndur á sýningum HRFÍ með góðum árangri. Hann fékk tvö íslensk meistarastig og var á sínum tíma á meðal stigahæstu schäferrakka landsins. Hann hlaut fjölda heiðursverðlauna fyrir afkvæmi sín, fjölmörg hafa fengið íslensk meistarastig og urðu mörg þeirra meistarar. Afkvæmahópur hans sigraði nokkrum sinnum aðrar tegundir á hundasýningum HRFÍ sem besti afkvæmahópur sýningar. Hugi var síðustu árin sýndur sem öldungur, fékk ávallt heiðursverðlaun og var margoft valinn besti öldungur tegundar. Hugi átti fjögur got með fjórum tíkum, alls 24 hvolpa og í upphafi þessa árs eignaðist hann 10 afabörn. Hugi var sá allra besti. Afburða vinnuhundur og yndislegur heimilishundur. Hann hafði allt það sem schäferhundur þarf að bera að okkar mati. Hann var öruggur, sjálfstæður, hugaður, hlýðinn og yfirvegaður sem nýttist honum einnig vel í vinnu en þar var hann 150% og alltaf hægt að treysta á hann. Hans er og verður sárt saknað. |
EldbergsSchäfer ræktun Fréttir
October 2022
Flokkar |